Stunning Instagram Logo Vector Free Download 43 For New Logo with Instagram Logo Vector Free Download 1 1024x1024 fb40x40 unionjack

2018 Ester LogoNA PDF vefstr

logona314

Vöktun hreindýrastofnsins - aðstoð frá almenningi

hreinnNáttúrustofa Austurlands annast vöktun og rannsóknir á hreindýrastofninum eins og segir í lögum þar um. Vöktunin nýtist m.a.til að meta ágang hreindýra á jarðir á Austurlandi en það ágangsmat er síðan einn liður í hreindýraarðsútreikningum.

Ljóst er að eftir því sem ítarlegri upplýsingum er safnað um hagagöngu hreindýra allan ársins hring hlýtur þetta mat að verða betra. Því er heitið á jarðeigendur á Austurlandi svo og aðra sem verða varir við hreindýr að tilkynna það til Náttúrustofu Austurlands. Í slíkum upplýsingum þarf að koma fram hver, hvar og hvenær menn sáu dýrin svo og fjöldi þeirra (taka fram ef hann er áætlaður) og annað sem menn telja áhugavert.

Þessum upplýsingum er komið á framfæri með því að hringja í Skarphéðinn G. Þórisson í síma 4712813 eða 8626774 eða að lesa inn skilaboð í talhólf. Einnig má senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 

Náttúrustofa Austurlands

  • Kt: 461094-2529
  • Sími: 477-1774
  • Netfang: na(hjá)na.is

Starfsstöð í Neskaupstað

Bakkavegi 5
740 Neskaupstaður

Starfsstöð á Egilsstöðum

Tjarnarbraut 39b
700 Egilsstaðir