Kjarnbítur
Kjarnbítur Coccothraustes coccothraustes er skrautlegur skógarfugl, skráðir hafa verið 22 fuglar á íslandi til ársins 2005. Nú undanfarna daga hefur fólk orðið vart við þennann fallega fugl í Neskaupstað og má sjá myndir af honum og fleiri fuglum á heimasíðu Jóns Guðmundssonar.
Fyrsti Kjarnbíturinn sem sást hér á landi var skráður á Höfn í Hornafirði í April 1975 Á vefsíðunni The Iceland Birding Pages má sjá nánari upplýsingar.
Þess má einnig geta að Edda á Miðhúsum hafði samband og sagði okkur frá því að í garðinum hennar hafa undanfarna daga verið um 20 silkitoppur og tveir glóbrystingar en einnig þrestir, auðnutittlingar, músarrindill og glókollur.