Stunning Instagram Logo Vector Free Download 43 For New Logo with Instagram Logo Vector Free Download 1 1024x1024 fb40x40 unionjack

2018 Ester LogoNA PDF vefstr

logona314

Hvítbók - almennur kynningafundur á Egilsstöðum


Mánudaginn 21. nóvember stendur umhverfisráðuneytið fyrir almennum kynningarfundi á Egilsstöðum um hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga skilaði af sér í haust og felur í sér heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Hvíbókin verður grunnur að væntanlegri endurskoðun náttúruverndarlaga sem unnið verður að á komandi mánuðum.
Í hvítbókinni er m.a. fjallað um nýjar aðferðir og viðhorf sem hafa rutt sér til rúms í náttúruvernd víða um heim og settar eru fram tillögur um hvernig koma megi þessum aðferðum og hugmyndum inn í íslenska löggjöf. Lögð er áhersla á að útfæra meginregur umhverfisréttar í nýjum náttúruverndarlögum, fjallað er ítarlega um friðlýsingar og annars konar verndaraðgerðir hér á landi, vatn, almannarétt og svo mætti lengi telja.


Opið umsagnarferli vegna hvítbókarinnar er nú hafið og stendur til 15. desember næstkomandi. Hvítbókin og umsagnirnar verða svo sem fyrr segir lagðar til grundvallar heildarendurskoðun núgildandi náttúruverndarlaga sem stendur fyrir dyrum.Hvítbókin var m.a. til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem haldið var 14. október síðastliðinn á Selfossi. Til að koma til móts við þá sem ekki áttu heimangegnt þann dag efnir umhverfisráðuneytið til almennra kynningarfunda á nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Fundurinn á Egilsstöðum verður haldinn mánudaginn 21. nóvember kl. 17 – 18:15 á Hótel Héraði en þar mun Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, kynna efni hvítbókarinnar og svara spurningum. Eru allir áhugasamir hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að kynna sér innihald hvítbókarinnar. Nánari umfjöllun um hvítbókina, upptökur frá kynningunni á umhverfisþingi og bókina sjálfa má nálgast á vefslóðinni www.umhverfisraduneyti.is/hvitbok

Náttúrustofa Austurlands

  • Kt: 461094-2529
  • Sími: 477-1774
  • Netfang: na(hjá)na.is

Starfsstöð í Neskaupstað

Bakkavegi 5
740 Neskaupstaður

Starfsstöð á Egilsstöðum

Tjarnarbraut 39b
700 Egilsstaðir