Stunning Instagram Logo Vector Free Download 43 For New Logo with Instagram Logo Vector Free Download 1 1024x1024 fb40x40 unionjack

2018 Ester LogoNA PDF vefstr

logona314

Blómadagurinn 2010

Blómadagurinn í NeskaupstaðDagur hinna viltu blóma eða blómadagurinn eins og hann er oft kallaður var sunnudaginn 14.júní síðastliðinn farið var í skipulagðar skoðanaferðir á þrem stöðum á austurlandi.

 

 

Á Egilsstöðum var það Skarphéðinn G. Þórisson  sem leiddi 14 áhugasama plöntuskoðara  upp í Grímstorfu í Hafrafelli. Allir höfðu lista með þeim tegundum sem fundist höfðu í Grímstorfunni sem Hörður Kristinsson útvegaði. Var mikill hugur í fólki að finna tegundir sem ekki voru áður skráðar á staðnum. Ferðin gekk í alla staði vel þrátt fyrir smá klungur síðasta spottann sem ungir og aldnir fóru greiðlega.


Erlín Emma Jóhannsdóttir leiddi hópinn í Neskaupstað . Það voru 8 manns sem mættu í blómaskoðun í sól og hæglætis veðri.  Hist var á bílastæðinu við Norðfjarðarvita og gengið út í Fólkvang, um Haga, Urðir og upp í Skálasnið. Meðal blóma sem sáust voru Villilín(Linum catharicum)sem sást í brekku ofan við göngustíg en var ekki í blóma og skógfjólan en hún var í blóma og sást á sama stað í fyrra.


Á Fáskrúðsfirði  var það Líneik Anna Sævarsdóttir sem var leisögumaður og mættu 12 fullorðnir og 6 börn í blómaröltið. Þátttakendur hittust við eyðibýlið Brimnesgerði og gengu upp með Villingaá.  Þarna eru nokkuð fjölbreytt gróðurlendi og fleiri plöntur komnar í blóma en ætla má í fljótu bragði.  Þarna mátti m.a. sjá fallega breiðu af stjöstjörnum með miklum bleikum lit í blóminu og í árgilinu mátti sjá sérstakleg glæsilega steindeplu.  Það sem vakti þó mesta athygli barnanna var mikill fjöldi af sniglum í brekkunum.  Þetta voru einkum svartsniglar, lyngbobbar (austfjarðabobbar) og brekkusniglar.  Veðrið var sérstaklega stillt og rakt og því virtust sniglarnir kunna vel.  Á leiðinni inn á Búðir var stoppað ofan við Mjóeyrina og rauðberjalyng sem þar fannst s.l. haust skoðað.  Lyngið var í blóma og eru ljósbleik blómin nokkuð áberandi.

Blómadagurinn í Neskaupstað Blómadagurinn , EgilsstaðirBlómadagurinn , Egilsstaðir

Tags: gróður, plöntur, blómadagurinn, blóm

Náttúrustofa Austurlands

  • Kt: 461094-2529
  • Sími: 477-1774
  • Netfang: na(hjá)na.is

Starfsstöð í Neskaupstað

Bakkavegi 5
740 Neskaupstaður

Starfsstöð á Egilsstöðum

Tjarnarbraut 39b
700 Egilsstaðir