Kæru gæsaveiðimenn og -konur og annað áhugafólk um gæsir, og fugla almennt. Við auglýstum leik í tengslum við vængjasöfnunarverkefnið okkar. Nú er búið að draga út heppinn vinningshafa, Stefán Kristmannson, sem hlaut í verðlaun 20.000 kr gjafabréf í Veiðiflugunni (@veidiflugan). Vængjasöfnunin gekk ágætlega hjá okkur í ár en alls söfnuðust nærri 1000 gæsavængir. Við stefnum að því að halda söfnuninni áfram á næsta ári og hvetjum veiðifólk til að hafa okkur í huga. Eins viljum við vekja athygli á því að við ásamt Náttúrustofu Norðausturlands og Náttúrustofu Suðvesturlands stöndum núna að aldursgreiningaátaki á svartfugli og viljum gjarnan fá að skoða afla veiðimanna. Ef að þið sjáið ykkur fært að leyfa okkur að koma og kíkja á fuglana hjá ykkur væri það þegið með þökkum. Sendið okkur endilega skilaboð. Svo minnum við alla á rjúpnavængjasöfnun Náttúrufræðistofnunar Íslands og hvetjum alla til að senda inn vængi. Við bjóðum upp á að veiðimenn geti skilað þeim til okkar í Neskaupstað eða á Egilsstöðum og við komum þeim áfram til Náttúrufræðistofnunnar.
Árlegur fugladagur Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags fjarðamanna var haldinn 29.apríl 2023. Fjaran var óvenju seint og var mæting við Leirurnar á Norðfirði kl 15:00 en við Leirurnar á Reyðarfirði kl.16:00 eða klukkutíma síðar.
Fallegur dagur léttskýjað en svalt og vindur og hitastigið 2-4°C. Í ár mættu 5 manns á Norðfirði, að starfsmanni Náttúrustofunnar meðtöldum en 7 á Reyðarfirði. Að þessu sinni sáust 24 fuglategundir á Reyðarfirði en 14 tegundir á Norðfirði. Tegundirnar sem sáust á Reyðarfirði voru: Grágæs, heiðlóa, bjargdúfa, silfurmáfur, hettumáfur, maríuerla, þúfutittingur, skógarþröstur, svartbakur, hrossagaukur, stelkur, urtönd, tjaldur, æðarfugl, stokkönd, sandlóa, hávella, himbrimi, skúfönd, tildra, toppönd, fýll, teista og jaðrakan. Auk þess sást einn landselur. Á Norðfirði sáust: Grágæs, æðarfugl, hávella, toppönd, tjaldur, sandlóa, sendlingur, tildra, stelkur, hettumáfur, stormmáfur, silfurmáfur, skógarþröstur og heiðlóa.
Ýmsar tegundir eru rétt að mæta á austurlandið um þetta leyti og því hending að þær sjáist í svo stuttri athugun.