Uppstoppaður hani gjöf til Náttúrugripasafnsins
Náttúrugripasafninu í Neskaupstað áskotnaðist um liðna helgi glæsilegur uppstoppaður hani. Haninn var boðinn upp á árlegum markaði Hosanna sem haldinn var í Safnahúsinu. Það var Pólska samfélagið í Neskaustað sem bauð best í hanann og ákvað að færa hann Náttúrugripasafninu að gjöf. Þannig voru slegnar tvær flugur í einu höggi með styrk til bæði Hosanna og Náttúrugripasafnsins. Það voru Kristín Ágústsdóttir og Guðmundur Sveinsson sem tóku við hananum fyrir hönd safnsins.
Haninn hefur frá upphafi fylgt húsinu Brekku í Neskaupstað, en það voru núverandi hænsnabændur á Brekku sem gáfu Hosunum hanann uppstoppaða. Áður var hann eigu hjónanna Guðna og Úrsúlu á Brekku, bæði lífs og liðinn.