Kortlagning NA á burðarsvæðum Snæfellshjarðar 2020
Burðartími hreindýra er að renna sitt skeið á enda þetta árið. Árleg burðarkortlagning Snæfellshjarðar lauk sunnudaginn 24.maí síðastliðinn, með flugi yfir Brúaröræfi og Jökuldalsheiði. Frá 2005 hefur Náttúrustofa Austurlands kortlagt burðarsvæði Snæfellshjarðar til að fá mynd af þeim og framgangi burðar í ólíkum árum. Svæðin eru kortlögð úr flugvél með því að staðsetja og mynda alla séða kúahópa á Snæfellsöræfum, Jökuldalsheiði, Fljótsdalsheiði og á heiðum norðvestan Vopnafjarðar. Í ár voru flognir um 2251km. Flugið tók um 15 klst og staðsettir voru um 76 hópar með frá einu og upp í um 50 fullorðnu dýri auk kálfa í hverjum hóp. Dreifing kúa á burðartíma fer að einhverju leiti eftir snjóalögum. Í snjóþyngri árum eins og nú virðast kýr dreifðar um stærra svæði og bera frekar á svæðum sem liggja lægra yfir sjó.