Náttúrufræðinámskeið á Eskifirði
Dagana 22. - 26. júní var hið árlega náttúrufræðinámskeið haldið á Eskifirði fyrir börn á aldrinum 6-10 ára. Námskeiðið er haldið af Náttúrustofu Austurlands og Ferðaþjónustunni Mjóeyri.
Farið var í fjöruskoðun fyrsta daginn þar sem fjölbreytt lífríki fjörunnar var skoðað. Annan daginn var farið í fuglaskoðun og skordýragildra sett niður. Því næst var Helgustaðanáma skoðuð og hinar ýmsu plöntutegundir greindar. Þá var lífríki ferskvatns kannað. Lokadaginn var svo farið inn á rannsóknarstofu Eskifjarðarskóla þar sem öll sýnin voru skoðuð í víðsjá og rifjað upp hvað við höfðum séð í vikunni.