Í lok apríl fékk Náttúrustofan tilkynningu um Landsvölu á bæ í Norðfirði. Landsvala (Barn Swallow (Hirundo rustica)) er flækingsfugl á Íslandi og sést oftast á sumrin. Hún verpir í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu en flýgur til Suður-Ameríku, Suðurhluta Afríku og suðurhluta Asíu á veturna. Smávaxinn og fimur spörfugl sem veiðir sér til matar á flugi og borðar helst flugur. Starfsmaður stofunnar náði þessari mynd af landsvölunni.
Leðurblaka barst til Náttúrustofu Austurlands í vikunni, fannst hún um borð í skipi á veiðum í Rósagarðinum nokkuð djúpt SA af Íslandi fyrir um það bil viku síðan. Skipverjar náðu að fanga hana lifandi en var hún í andaslitrunum þegar komið var að landi. Um er að ræða leðurblöku af tegundinni trítilblaka(Pipistrellus nathusii). Sú tegund hefur fundist hér á landi nokkru sinnum, en aðalheimkynni hennar eru austanverð Evrópa. Er þetta í fjórða skipti frá árinu 2014 sem Náttúrustofa Austurlands fær tilkynningu um leðurblöku.
Á Náttúrugripasafninu í Neskaupstað má sjá uppstoppaða trítilblöku einmitt þá sem barst til okkar árið 2014.