Trítilblaka
Leðurblaka barst til Náttúrustofu Austurlands í vikunni, fannst hún um borð í skipi á veiðum í Rósagarðinum nokkuð djúpt SA af Íslandi fyrir um það bil viku síðan. Skipverjar náðu að fanga hana lifandi en var hún í andaslitrunum þegar komið var að landi. Um er að ræða leðurblöku af tegundinni trítilblaka (Pipistrellus nathusii). Sú tegund hefur fundist hér á landi nokkru sinnum, en aðalheimkynni hennar eru austanverð Evrópa. Er þetta í fjórða skipti frá árinu 2014 sem Náttúrustofa Austurlands fær tilkynningu um leðurblöku.
Á Náttúrugripasafninu í Neskaupstað má sjá uppstoppaða trítilblöku einmitt þá sem barst til okkar árið 2014.
Tags: flækingar, flækingur, Trítilblaka, leðurblaka