Jólakveðja
Jólakveðja frá starfsfólki Náttúrustofu Austurlands.
smellið til að stækka.
Jólakveðja frá starfsfólki Náttúrustofu Austurlands.
smellið til að stækka.
Huldís Snæbjörnsdóttir sá tvær flotmeisur á Egilsstöðum 2. nóvember og náði þeim á myndband sem hún birti á feisbúkk (https://www.facebook.com/video.php?v=844524258921805)
Líklega voru það sömu flotmeisurnar sem sáust um síðustu mánaðarmót og síðan annars slagið hjá Hjálmari Jóelssyni að Sólvöllum 3 á Egilsstöðum þar sem hann fóðrar smáfuglana myndarlega.
Fyrsta flotmeisan sást á Íslandi 1959. Síðast sáust fjórar saman í Reykjavík í nóvember 2012. Ef gengið er út frá því að flotmeisurnar á Egilsstöðum séu bara tvær þá hafa samtals sést tíu einstaklingar í sex skipti á íslandi, Þar til nú hafa þær allar sést í Reykjavík nema ein í Vestmannaeyjum. Flotmeisan er staðfugl í Evrópu sem skýrir hversu sjaldgæf hún er á Íslandi.
Hreindýr á vegum hættuleg svæði hefur verið uppfært.
Sjá link hér til hægri.
Síðustu árin hefur hreindýrum sem verða fyrir bílum fjölgað.
Yfir þrjátíu dýr hafa lent fyrir bíl á þessu ári, aldrei áður hafa svo mörg dýr verið keyrð niður á einu ári. Hér má sjá samantekt og nánari upplýsingar.
Vegfarendur eru hvattir til að aka varlega í skammdeginu og einkum á hættulegustu stöðunum þar sem hreindýr geta fyrirvaralaust ætt inn á veginn í veg fyrir bílinn
Fyrri hluta vetrar 2014 flæktust til landsins ýmsir fljúgandi ferðalangar meðal annars til Austurlands þar sem þeir voru myndaðir og nokkrum var safnað. Samkvæmt Erling Ólafssyni skordýrafræðingi á Náttúrufræðistofnun Íslands var um að ræða frekar algengar tegundir í Evrópu en fátíða gesti hér á landi. Þrjár tegundir komu í gildru á Norðfirði og ein þeirra sást á Héraði. Þetta voru Skrautygla (Phogophora meticulosa), Stjörnuygla (Eupsilia transversa) og Reyrygla (Rhizedra lutosa), sem söfnuðust allar.
Þann 7. nóvember 2014 taldi Náttúrustofan hreindýr á Mýrum.
Um 300 hreindýr fundust og voru þau flest á túnum Flateyjar.
Með því að smella hér má sjá fréttatextann í heild.
.