Hrafnavarp
Hrafnapar var heimsótt á Héraði sunnudaginn 4. maí. Það hafði byggt upp fallegan laup úr sprekum fóðraðan með ull. Hann hafði verpt fimm eggjum og var einn ungi nýskriðinn úr eggi og annar á leiðinni.
Þar sem útungunin tekur um 20 daga er ljóst að krummi hefur verpt níu nóttum fyrir sumar eins og þjóðtrúin segir reyndar til um. Hreiðrið er austan í móti og því spurning hvort krummi óttist norðankulda næstu vikur.