Þann 21. nóvember næstkomandi munu Samtök náttúrustofa á Íslandi (SNS) standa fyrir náttúrustofuþingi. Þetta er í þriðja skipti sem slíkt þing er haldið í tengslum við ársfund félagsins.
Samtök náttúrustofa voru stofnuð árið 2002 og eru aðilar að þeim Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Norðausturlands, Náttúrustofa Austurlands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Reykjaness, Náttúrustofa Vesturlands og Náttúrustofa Vestfjarða. Heimasíða SNS
Þann 24. október voru Skarphéðinn Þórisson og Reimar Ásgeirsson að svipast um eftir hreindýrum á Fljótsdalsheiði á vegum Náttúrustofunnar. Fyrir miðri Bræðraöldu að norðanverðu ráku þeir augun í hreinkú sem stóð yfir nýdauðum kálfi. Kálfurinn var ekki nema 1-2 daga gamall en hafði verið karaður. Þetta var tarfkálfur sem vó 5.6 kg. Meðalþyngd 22 nýfæddra tarfkálfa á Vesturöræfum reyndist 5.7 kg. Ekki er vitað hvað varð honum að aldurtila. Yfirleitt bera kýrnar í maí en það virðist hafa aukist hin síðari ár að kýr beri á öðrum tíma.
Gerður Guðmundsdóttir plöntuvistfræðingur (M.Sc.) hjá Náttúrustofu Austurlands mun flyja erindið: Kolefnisupptaka birkis og annarra lauftrjáa á Héraði við breytilegar umhverfisaðstæður. Fimmtudaginn 25.október n.k. Allir velkomnir. smellið á myndina til að sjá hana stærri.
Þann 20. ágúst felldi Ólafur Jónsson merktan tarf á Svínadal undir Teigagerðistindi við Reyðarfjörð í um rúmlega 100 dýra hópi, svokallaðri Reyðarfjarðarhjörð. Fallið af honum var nákvæmlega 100 kg og fita á baki þykkust 51 mm. Leiðsögumaður í ferðinni var Sævar Guðjónsson. Tarfurinn hafði verið merktur 2004 og því á fjórða hausti eða þriggja ára (sjá heimasíðufrétt frá 3. nóvember 2006: “Hornprúður boli”).
Margvísleg erindi berast inn á borð starfsmanna Náttúrustofu Austurlands og máttu þeir fá að spreyta sig á pöddu sem varð á vegi eins þeirra og hann þekkti ekki. Fyrirbærið var myndað á slaka stafræna myndavél og reyndi þá enn fremur á skarpskyggni og úrræði í greiningu. Ekki tók langan tíma að komast að því hvað hér var á ferðinni með hjálp netsins og Erling Ólafsson skordýrasérfræðingur Náttúrufræðistofnunar Íslands staðfesti síðan greininguna. Þetta er dæmi um hvað berst til Náttúrufstofu Austurlands á hverju ári og er fólk hér með hvatt til að senda inn fyrirspurnir og erindi til stofunnar sem þeir vilja fá úr skorið og hika ekki við að senda slakar myndir