Blómadagurinn 2014
Dagur hinna viltu blóma eða blómadagurinn eins og hann er oft kallaður var sunnudaginn 15.júní síðastliðinn. Farið var í skipulagða skoðanaferðir á þrem stöðum á austurlandi.
Á Egilsstöðum var það Skarphéðinn G. Þórisson sem leiddi hópinn 6 áhugasamir plöntuskoðara gengu með Skarphéðni um nágrenni Pálstjarnar og upp á Ekkjufell. Skoðuð voru m.a. mýberjalyng og villijarðarber.
Gerður Guðmundsdóttir leiddi hópinn í Neskaupstað . Það voru 5 manns sem mættu í blómaskoðun í góðu veðri. Gengið var um Hjallaskóg og nágrenni.
Á Fáskrúðsfirði var það Líneik Anna Sævarsdóttir sem var leisögumaður og mættu 6 manns. Mæting var við Sævarenda og gengið upp með Naustá. Skoðaðar voru m.a. sjöstjarna, maríuvöttur og melasól.
Tags: gróður, plöntur, blómadagurinn, blóm