Hreindýraveiðisvæði
Náttúrustofa Austurlands gerir tillögur til Hreindýraráðs um veiðikvóta hreindýra ár hvert svo og ágangssvæði. Hreindýraráð gerir svo tillögur til Umhverfisstofnunar sem gerir tillögur til umhverfisráðherra.
Tillögur hvers árs má sjá undir Útgefið efni á heimasíðu Náttúrustofunnar. Hér má t.d. sjá tillögur að veiðikvóta ársins 2017.
Það er Umhverfisstofnun á Egilsstöðum sem heldur utan um veiðarnar.
Kortið á þessari síðu er hugsað til gamans fyrir áhugamenn um veiðisvæðin. Engin ábyrgð er tekin á mörkunum, sem byggð eru á sveitarfélagamörkum frá LMÍ sem gefin eru út í litlum mælikvarða.
Nánar um veiðisvæðin á vef Umhverfisstofnunar og um skiptingu stofnsins í hjarðir hér..
Veiðisvæði kort: