Stunning Instagram Logo Vector Free Download 43 For New Logo with Instagram Logo Vector Free Download 1 1024x1024 fb40x40 unionjack

2018 Ester LogoNA PDF vefstr

logona314

8.maí. Fuglatalning og fuglaskoðun

Fugladagurinn 2009 á Norðfirði8. maí. Fuglatalning og fuglaskoðun á leirum Reyðarfjarðar og Norðfjarðar
Samvinnuferð með Ferðafélagi fjarðamanna á austurlandi. Sérfræðingar frá Náttúrustofu Austurlands stjórna talningu og koma með „fuglaskóp“ fyrir þátttakendur. Frítt fyrir alla.
Mæting á háfjöru
kl. 16:00 á Norðfirði og kl. 17:00 á Reyðarfirði.

Fugladagurinn næstkomandi Laugardag

Fugladagurinn 2011 Árlegur fugladagur verður Laugardaginn 12. maí.  Fuglatalning og fuglaskoðun á leirum Reyðarfjarðar og Norðfjarðar
Samvinnuferð Ferðafélags fjarðamanna og Náttúrustofu Austurlands. Sérfræðingar Náttúrustofu stjórna talningu og koma með „fuglaskóp“ fyrir þátttakendur.
Mæting á háfjöru kl. 12:30 á Norðfirði og kl. 13:30 á Reyðarfirði.

Fugladagurinn 10.Maí

thumb_fuglaskodun 2006Fuglaskoðun og fuglatalning á leirum Norðfjarðar og Reyðarfjarðar verður laugardaginn 10.maí. Þetta er árviss viðburður sem Náttúrustofa Austurlands og Ferðafélag Fjarðamanna standa að. Fuglaskóp verður á staðnum og starfsmenn Náttúrustofunnar leiðbeina fólki.

Mæting á háfjöru á leirunum á Norðfirði klukkan 11:00 og við Andapollinn á Reyðarfirði klukkan 11:30. Frítt fyrir alla og allir velkomnir

Fugladagurinn 2007

fdagur071 Hinn árlegi fugladagur Ferðafélags Fjarðamanna og Náttúrustofu Austurlands sem haldin var þann 5. maí síðastliðin á leirunum í Norðfirði og Reyðarfirði tókst með ágætum. Dagurinn hófst kl. 09:00 á leirunum í Norðfirði undir leiðsögn Skarphéðins G. Þórissonar og Ránar Þórarinsdóttur og þrátt fyrir nokkurn kulda mættu um 12 áhugasamra fuglaskoðara við leiruna. Á leirunum við Reyðarfjörð hófst dagurinn kl. 10:30 undir öruggri leiðsögn Halldórs W. Stefánssonar en heldur fleiri eða 22 fuglaskoðarar voru mættir þar, enda Halldór ástsæll meðal fuglaskoðara á Reyðarfirði.  

Fugladagurinn 2008


thumb_kikt_a_fuglaFugladagur Ferðafélags Fjarðarmanna og Náttúrustofu Austurlands var að þessu sinni haldinn 10. maí á Norðfirði og Reyðarfirði.  Um leiðsögn sáu Skarphéðinn G. Þórisson, Halldór W.  Stefánsson og Rán Þórarinsdóttir en auk þeirra voru mættir nær allir starfsmenn Náttúrustofunnar ásamt Ínu Gísladóttur frá Ferðafélagi Fjarðarmanna leiðsögumönnum og öðrum fuglaskoðurum til halds og trausts.

Fugladagurinn 2009

Hin árlega fuglaskoðun Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags Fjarðarmanna fór fram í blíðskaparveðri á leirunum í Reyðarfirði og Norðfirði á morgunfjörunni sunnudaginn 10.maí eftir að henni hafði verið frestað um einn sólarhring vegna veðurs á laugardegi.

Fugladagurinn 2011

Fuglaáhugafólk á ReyðarfirðiHinn árlegi fugladagur Ferðafélags Fjarðamanna og Náttúrustofu Austurlands var haldinn þann 7. maí síðastliðinn á leirunum í Norðfirði og Reyðarfirði. Hann tókst með ágætum þrátt fyrir að veðrið léki ekki við fuglaskoðara.

 

Fugladagurinn 2012

mynd úr myndasafni NAFugladagurinn var síðastliðinn laugardag 12 maí og má sjá samantekt frá þeim degi  fyrir Reyðarfjörð og Norðfjörð með því að smella hér

Fugladagurinn 2013 samantekt

Fugladagurinn 2013Árlegur fugladagur var haldinn á fjörðunum 12. maí 2013. Náttúrustofa Austurlands og Ferðafélag Fjarðamanna standa fyrir þessum degi í maí á hverju ári á Norðfirði og í Reyðarfirði. Náttúrustofan mætir með fjarsjá þar sem sjá má fugla í  meira návígi. Flestir mæta sjálfir með kíkja og allir hjálpast að við að greina þá fugla sem sjást. Ungir sem aldnir, óvanir áhugamenn jafnt sem glúrnir fuglagrúskarar spyrja og deila fróðleik um einkenni og atferli hinna og þessara tegunda. Enginn fugl þykir of ómerkilegur til að ræða þótt skoðanir á þeim séu ólíkar.

 

 

 

Fugladagurinn 2014

Fugladagurinn 2014Hinn árlegi fugladagur sem Náttúrustofa Austurlands og Ferðafélag Fjarðarmanna standa fyrir, fór fram á Norðfirði og á Reyðarfirði 3. maí 2014.

 

 

 

Fugladagurinn 2015

HeiðlóaÁrleg fuglatalning og fuglaskoðun  verður næstkomandi helgi.
Laugardaginn 2. maí, kl. 9 á Reyðarfirði við Andapollinn.
Sunnudaginn 3. maí, kl. 9 á Norðfirði við Leiruna.
Samvinnuferð Ferðafélags Fjarðamanna og  Náttúrustofu Austurlands  um leirur Reyðarfjarðar og Norðfjarðar.
Sérfræðingar Náttúrustofu stjórna talningu og koma með „fuglaskóp" fyrir þátttakendur. Allir velkomnir.

 

Fugladagurinn 2016

Þátttakendur á Reyðarfirði virða fyrir sér fugla á leirunni.Leirufuglar 2016 á Reyðarfirði.
Þann 7.5.2016 mættu átta manns í árlega leirufuglaskoðun Náttúrustofunnar og Ferðafélags Fjarðarmanna við Andapollinn og leiruna í botni Reyðarfjarðar kl 9:00 til 11:00. Veður var ágætt; vestan strekkingur, hálfskýjað og hiti um 5°.
Alls sáust 30 fuglategundir sem flestar eru hefðbundnar fyrir svæðið og hafa sést áður að undanskilinni einni, stormmáfi. Eftirfarandi tegundir sáust að þessu sinni:
Heiðagæs, silfurmáfur, heiðlóa, stelkur, skúfönd, spói, stokkönd, grágæs, hettumáfur, fýll, stormmáfur, sandlóa, jaðrakan, tjaldur, lóuþræll, þúfutittlingur, kría, bjargdúfa, æður, dílaskarfur, kjói, hávella, sendlingur, tildra, álft, álka, svartbakur, rauðhöfðaönd, straumönd og skógarþröstur. Hrossagaukar flugu yfir svæðið þegar fuglaskoðun var lokið og telst hann því ekki með.
Heiðagæsahópar í oddaflugi í mikilli hæð flugu inn fjörðinn á meðan fuglaskoðun stóð sem greinilega voru að koma til landsins af hafi.
Einn landselur virti fuglaskoðara fyrir sér skammt frá landi og vöktu tveir franskir fuglaskoðarar mesta athygli hans.

Leirufuglar 2016 á Norðfirði.
Auk fjögurra starfsmanna frá Náttúrustofu Austurlands mættu 11 manns til fuglaskoðunar við Leirurnar í botni Norðfjarðar laugardaginn 7. maí 2016. Veður var kalt en bjart. Vestan strekkingur var framan af og hiti 4-5 gráður C°. Fuglaathugunin hófst kl 8 að morgni og stóð í um einn og hálfan klukkutíma en þá voru menn orðnir nokkuð vindbarðir, kaldir og komnir með óhóflegt sandmagn í hársvörðinn .
Vegna vindgnauðs þyrptust fuglaskoðarar í hnapp skjólmegin við sandbing á söndunum innan við ósinn og skoðuðu þar sandana fyrir utan. Sandarnir í Norðfjarðaránni voru einnig skoðaðir lauslega en Leirurnar norðan flugvallar og Ingunnarkíll voru ekki skoðaðir að þessu sinni meðan á talningu stóð. Í ár sáust aðeins 17 tegundir meðan á formlegri athugun stóð en toppandarpar á Leirunum, nokkrar skúfendur á Ingunnarkíl og hrossagaukur á flugi bættust við þegar kíkt var lauslega yfir allt svæðið eftir að fuglaathuguninni lauk.
Eftirfarandi tegundir sáust: Grágæs, rauðhöfði, æður, hávella, tjaldur, heiðlóa, sandlóa, lóuþræll, sendlingur, stelkur, hettumáfur, sílamáfur, silfurmáfur, líkl. bjartmáfur (ungur), kría, þúfutittlingur og hrafn.
Frá Náttúrurstofu Austurlands mættu: Elín Guðmundsdóttir, Kristín Ágústsdóttir, Áslaug Lárusdóttir og Rán Þórarinsdóttir. Aðrir fuglaskoðarar á svæðinu þennan morgun: Þorgeir. V. Þórarinsson (heilsaði upp á okkur en var annars mættur til að taka út æðarvarpið), Tómas Ægir Theodórsson, Benedikt K. Gröndal, Kristín B. Jónsdóttir, Ari Benediktsson, Ari Sigurjónsson, Hafrún Katla Aradóttir, Jóna Katrín Aradóttir, Benedikt Sigurjónsson, Sigurður Þór Vilhjálmsson og Robyn Vilhjálmsson.
Þorgeir gat frætt okkur á því að minkur hafi verið að gera kollum lífið leitt í varpinu en hann hafði náðst deginum áður.
Það verður að teljast vel af sér vikið að svo margir fuglaáhugamenn sjá sér fært að mæta svo snemma á laugardagsmorgni þrátt fyrir svalt og vindasamt veður. Bætti það vel upp fyrir fremur slæglega mætingu fuglategunda. Vonandi verður mæting fuglaskoðara áfram góð á næsta ári og fuglategundir á Norðfjarðarleirum fleiri. 

 

Fugladagurinn 2023

Árlegur fugladagur Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags fjarðamanna var haldinn 29.apríl 2023. Fjaran var óvenju seint og var mæting við Leirurnar á Norðfirði kl 15:00 en við Leirurnar á Reyðarfirði kl.16:00 eða klukkutíma síðar.

Fallegur dagur léttskýjað en svalt og vindur og hitastigið 2-4°C.  Í ár mættu 5 manns á Norðfirði, að starfsmanni Náttúrustofunnar meðtöldum en 7 á Reyðarfirði. Að þessu sinni sáust 24 fuglategundir á Reyðarfirði en 14 tegundir á Norðfirði.
Tegundirnar sem sáust á Reyðarfirði voru: Grágæs, heiðlóa, bjargdúfa, silfurmáfur, hettumáfur, maríuerla, þúfutittingur, skógarþröstur, svartbakur, hrossagaukur, stelkur, urtönd, tjaldur, æðarfugl, stokkönd, sandlóa, hávella, himbrimi, skúfönd, tildra, toppönd, fýll, teista og jaðrakan. Auk þess sást einn landselur.
Á Norðfirði sáust: Grágæs, æðarfugl, hávella, toppönd, tjaldur, sandlóa, sendlingur, tildra, stelkur, hettumáfur, stormmáfur, silfurmáfur, skógarþröstur og heiðlóa.

Ýmsar tegundir eru rétt að mæta á austurlandið um þetta leyti og því hending að þær sjáist í svo stuttri athugun.

101 5343 Reyðarfj

20230429 153927 Norðfj

Fugladagurinn 3.maí 2014

FugladagurinnHinn árlegi fugladagur verður á leirum Norðfjarðar og Reyðarfjarðar n.k. laugardag 3. maí 2014 á vegum Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags Fjarðarmanna.

Þar veður fuglaskoðurum leiðbeint um svæðin og er mæting við leiruna í Norðfirði kl 9:00 og við andapollinn á Reyðarfirði kl 10:00.

Fugladagurinn næstkomandi Laugardag

Fugladagurinn á Reyðarfirði 2010Árlegur fugladagur verður Laugardaginn 11. maí.  Fuglatalning og fuglaskoðun á leirum Reyðarfjarðar og Norðfjarðar
Samvinnuferð Ferðafélags fjarðamannaog Náttúrustofu Austurlands. Sérfræðingar Náttúrustofu stjórna talningu og koma með „fuglaskóp“ fyrir þátttakendur.
Mæting á háfjöru kl. 9 á Norðfirði við leiruna og kl. 9 á Reyðarfirði við andapollinn.

Fuglaskoðun í Reyðarfirði

Fuglaskoðun í Reyðarfirði á vegum Náttúrustofu Austurlands 21. apríl 2000

Klukkan tíu stillti undirritaður sér upp við andapollinn á Reyðarfirði með 2 fjarsjár, 2 sjónauka og nokkrar handbækur um fugla.  Þá þegar voru um 10 áhugasamir fuglaskoðarar mættir á svæðið.  Fuglaskoðun lauk kl. tólf en þá hafði á þriðja tug mætt eða álíka fjöldi og í Iðrunargöngu kirkjunnar á Þingvöllum sama dag. Þeir sem mættu voru flestir Reyðfirðingar, ein stúlka frá Norðfirði og einn Hafnfirðingur í heimsókn.  Einn Reyðfirðinganna, Gunnar B. Ólafsson, hafði fylgst með fuglunum á svæðinu og miðlaði fróðleik sínum.

Fuglar sem héldu sig á leirunum voru mest áberandi og fuglar á sjónum í fjarðabotni.

FUGLALISTI: 

FýllNokkrir á sveimi í fjarðarbotni

Gráhegri Einn ungfugl sem stillti sér upp til sýnis á á fjörukambinum stutt innan við girðinguna.  Gunnar Ólafsson hafði séð fuglinn af og til seinni partinn í vetur.  Þegar hann flögraði  um ókyrrðust gæsirnar mikið enda minnir hann mjög á ránfugl á flugi.

Grágæs Nokkur pör upp á fjörukambinum þar sem þær munu verpa í vor.

Stokkönd Nokkur pör í sjónum og í grunnum pollum á leirunni.

RauðhöfðiSex fuglar í sjónum.

ÆðurUm 400 fuglar fleki á fjarðarbotni og við bryggjuna.

HávellaReitingur innan um æðurinn.

StelkurUm 20 fuglar í hóp á leirunni

TjaldurPar í fjörunni nálægt girðingu rétt hjá þar sem ég fann hreiður þeirra síðastliðið vor.

SendlingurUm 10 fuglar á leirunni.

SilfurmáfurNokkrir fullorðnir á flugi yfir.

HettumáfurHópur að streppa (æsiatferli, róta upp) í grunnum leirupolli. Til viðbótar má geta þess að Halldór W. Stefánsson sá heiðlóur á leirunni daginn áður.  Einnig höfðu sést tveir svartþrestir á Reyðarfirði fyrir skömmu.  Þá var talað um æðarkóng í æðarhópunum í Neskaupstað.

Fellabæ laugardaginn 22. apríl 2000

Skarphéðinn G. Þórisson

Fuglaskoðunardagur 8.maí ( Alþjóðlegur Farfugladagur)

Fugladagurinn NorðfirðiHin árlega fuglaskoðun Náttúrustofu Austurlands og Ferðafélags Fjarðamanna fór fram í blíðskaparveðri á leirunum í Reyðarfirði og Norðfirði laugardaginn 8.maí en dagurinn er Alþjóðlegur Farfugladagur. Að þessu sinni var hann haldinn eftir hádegi vegna þess hversu snemma morgunfjaran var.

Góð mæting var á báðum stöðum á Reyðarfirði mættu 13 manns en á Norðfirði mættu 25.

Fuglaskoðunardagurinn laugardaginn 7.maí

tjaldurFuglatalning og fuglaskoðun á leirum Reyðarfjarðar og Norðfjarðar, laugardaginn 7.maí næstkomandi.
Samvinnuferð með Ferðafélagi Fjarðamanna. Sérfræðingar frá Náttúrustofu Austurlands verða á svæðinu og koma með „fuglaskóp“ fyrir þátttakendur.
Frítt fyrir alla. Mæting á fjöru kl. 9 á Norðfirði og kl. 10 á Reyðarfirði.

Til gamans má benda á  þessa frétt frá fugladeginum 2010.

Fuglatalning og fuglaskoðun

jadrakanNæstkomandi laugardag 7. maí  verður árleg fuglatalning og fuglaskoðun á leirum Reyðarfjarðar og Norðfjarðar.
Er þetta samvinnuferð Ferðafélags Fjarðamanna og Náttúrustofu Austurlands. 
Hist verður  kl. 9 á Reyðarfirði við Andapollinn og kl. 8 á Norðfirði við Leiruna.
Sérfræðingar Náttúrustofu Austurlands verða á svæðinu, stjórna talningu og verða með skóp en gott er að hafa með sér sjónauka.
Allir velkomnir.

Náttúrustofa Austurlands

  • Kt: 461094-2529
  • Sími: 477-1774
  • Netfang: na(hjá)na.is

Starfsstöð í Neskaupstað

Bakkavegi 5
740 Neskaupstaður

Starfsstöð á Egilsstöðum

Tjarnarbraut 39b
700 Egilsstaðir