Fuglatalning og fuglaskoðun
Næstkomandi laugardag 7. maí verður árleg fuglatalning og fuglaskoðun á leirum Reyðarfjarðar og Norðfjarðar.
Er þetta samvinnuferð Ferðafélags Fjarðamanna og Náttúrustofu Austurlands.
Hist verður kl. 9 á Reyðarfirði við Andapollinn og kl. 8 á Norðfirði við Leiruna.
Sérfræðingar Náttúrustofu Austurlands verða á svæðinu, stjórna talningu og verða með skóp en gott er að hafa með sér sjónauka.
Allir velkomnir.
Tags: fuglar, fugladagurinn