Náttúrufæðinámskeið
Enn er laust pláss á náttúrufræðinámskeiðin sem halda á 12-16.júní á Norðfirði og 19-23. júní á Eskifirði (sjá nánari upplýsingar hér að neðan).
Náttúrustofan stendur fyrir náttúrufræðinámskeiði á Norðfirði og Eskifirði fyrir krakka á aldrinum 8-10 ára. Markmið námskeiðsins er að kynna krökkunum fjölbreytt dýra-og plöntulíf í íslenskri náttúru. Farið verður í fjöruferð, í læk eða tjörn og í fleiri vettvangsferðir. Fuglar verða skoðaðir, smádýrum og plöntum safnað og komið með í hús og það skoðað undir víðsjá og greint.
Námskeiðið verður haldið dagana 12-16 júní á Norðfirði og 19-23 júní á Eskifirði frá kl.09:00-12:00 daglega.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 og ganga þeir fyrir sem skrá sig fyrst.
Námskeiðsgjaldið er 3.000 kr fyrir barn.
Allar frekari upplýsingar og skráning er hjá Náttúrustofu Austurlands í síma 477-1774