Náttúrufræðinámskeið aftur í sumar, í Neskaupstað og á Eskifirði/Reyðarfirði
Líkt og í fyrrasumar mun Náttúrustofa Austurlands vera með náttúrufræðinámskeið fyrir krakka á aldrinum 8 til 10 ára. Markmið námskeiðsins er að kynna krökkum fjölbreytt dýra- og plöntulíf íslenskrar náttúru. Farið verður í fjöruferð, kíkt í læki, skógræktarreitir skoðaðir o.fl.
Fuglar verða skoðaðir, smádýrum og plöntum safna og komið með í hús til greiningar í víðsjá.
Í fyrra var einungis boðið upp á námskeiðið í Neskaupstað, en í sumar er fyrirhugaða að hafa námskeiðin tvö, eitt í Neskaupstað og annað á Eskifirði/Reyðarfirði. Skráning í námskeiðin er ekki hafin, en endilega fylgist með nánari auglýsingum síðar.