Skagfirsk náttúra 2008
Fræðsludagur um náttúrufar Skagafjarðar verður haldinn á Sauðárkróki á vegum Náttúrustofu Norðurlands vestra laugardaginn 12. apríl næstkomandi.
Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri Skagafjarðar mun setja fræðsludaginn og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra mun að því loknu flytja gestum ávarp. Í kjölfarið hefst fyrirlestraröð sem mun standa yfir daginn. Þar verður komið víða við á ýmsum sviðum er lúta að náttúrufari Skagafjarðarhéraðs.
Nánari upplýsingar má sjá í meðfylgjandi auglýsingu og á heimasíðu Náttúrustofu Norðurlands vestra