Grátrana í Vöðlavík
Tilkynning barst frá Gísla H Guðjónssyni og Jóhönnu Lindbergsdóttur um að sést hafi til Grátrönu í Vöðlavík helgina 23-25 maí 2008.
Grátrana er stór fugl og glæsilegur hæð 110-120cm og vænghaf 220-245 cm.
Grátranan kom nálægt húsinu sem fólkið dvaldist í, en var stygg og flaug þegar hún varð manna vör.
Ef þið eigið leið um svæðið og verðið vör við hana væri gaman að fá nánari fréttir af því netfangið okkar er na[hjá]na.is og sími 4771774
(Teikning: Steen Langvad, úr Fuglar á Íslandi og öðrum eyjum í Norður Atlantshafi)