Náttúrustofuþing
Náttúrustofuþing verður haldið í Grundarfirði föstudaginn 26. september næstkomandi.
Náttúrustofur eru sjö talsins, dreifðar vítt og breitt um landið. Þær mynda með sér Samtök náttúrustofa (SNS), sem er samstarfs- og samráðsvettvangur þeirra. Undanfarin ár hefur skapast sú hefð að náttúrustofurnar skiptist á að halda ráðstefnu haust hvert í tengslum við aðalfund samtakanna. Að þessu sinni er gestgjafinn Náttúrustofa Vesturlands.