Hnúfubakur í Seyðisfirði
Þann 19. apríl sáust tveir hnúfubakar utarlega í Seyðisfirði. Hnúfubakurinn er skíðishvalur og heitir Megaptera novaeangliae á fræðimáli. Fyrra nafnið þýðir “risavængur” en bægsli þeirra geta orðið 5-6 m löng.
Þeir koma flestir á vorin eins og farfuglarnir eftir vetrardvöl í heitari höfum. Þeir geta orðið 17m langir og um 40 tonn að þyngd og lifað í a.m.k. 95 ár. Kýrin er í við stærri en tarfurinn. Kálfurinn er um hálft tonn við fæðingu og 4-5m langur. Hnúfubakurinn var mikið veiddur fyrrum en friðaður 1955. Síðustu áratugi hefur honum fjölgað mikið