1.bekkur Nesskóla færir Náttúrugripasafninu í Neskaupstað 2 laupa að gjöf
Þann 28.maí gáfu 1.bekkingar Nesskóla Náttúrugripasafninu 2 laupa (hrafnshreiður) sem þau höfðu unnið að í vetur. Krakkarnir söfnuðu greinum, ull og alls kyns glitrandi dóti og útbjuggu laupa úr því. Eins og flestir vita eru hrafnar bæði hrekkjóttir og þjófóttir og er samsetning hreiðursins háð því hvaða efni hann finnur í grennd við hreiðurstæðið.
Meirihluti hreiðurdyngjunnar er úr greinum, sprekum, lurkum, beinum o.fl. Ull er mjög oft notuð til að fóðra hreiðurskálina en einnig sina, hrosshár, fjaðrir o.fl. Hann er oftast um ½-1 m í þvermál og 20-40 cm að þykkt.
Við þökkum krökkunum í 1.bekk kærlega fyrir þessa gjöf og munu lauparnir verða til sýnis á safninu.