Aðmírálsfiðrildi í Fellabæ
Þann 6. júlí sást meðfylgjandi aðmírálsfiðrildi (Vanessa atalanta) í Fjóluhvammi í Fellabæ og fyrr um daginn hafði annað sést í öðrum garði í bænum. Þegar netið er gúglað sést að fyrsta aðmírálsfiðrildið í ár sást 9. maí á Selfossi. Síðan þá hafa þau sést vítt og breitt um landið. Fiðrildi sáust á Egilsstöðum þann 16. júní og á Seyðisfirði þann 20. Upplýsingar um tegundina má finna á Vísindavefnum;
http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=2131
Allar upplýsingar um stór og litskrúðug fiðrildi sem sjást á Austurlandi eru vel þegnar og fólk beðið um að tilkynna það til Náttúrustofu.
Þess má einnig geta að Edda á Miðhúsum sendi okkur tölvupóst en hún sá fiðrildið á myndinni hér að neðan flögra um hlaðið á Miðhúsum á Fljótsdalshéraði síðastliðinn laugardag. Netfangið okkar er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.