Skrautygla
Fimmtudaginn 20. Nóvember barst Náttúrustofunni lifandi fiðrildi en það fannst í sólstofu í heimahúsi.
Fiðrildið er af tegund Skrautygla (Phlogophora meticulosa) en þau eru flökkufiðrildi hér á landi og berast nokkuð oft hingað á haustin. Heimkynni þeirra eru í Evrópu, N.-Afríku og V.-Asíu. Þetta eru þó nokkuð stór næturfiðrildi með vænghaf allt upp í 50 mm og eru mjög skrautleg eins og nafnið ber til kynna.