Æðarfugl og fleira
Árlega á útmánuðum er stór hópur æðarfugls utan við höfnina í Neskaupstað og er áætlað að þar séu 5-10.000 fuglar. Hann var skoðaður lauslega 21. mars síðast liðinn og sást í honum einn fullorðinn æðarkóngur. Gaman væri að hitta á hann í varpi í sumar.
Æðarkóngur hefur verið í æðarvarpi við Sævarenda í Loðmundarfirði. Náttúrustofan biður æðarbændur og aðra er kynnu að rekast á kónga í varpi að láta vita. Auk æðarfugls bar mikið á hávellu, fýl og silfurmáfi. Tvær myndir eru af ungum bjarfmáf sem var á þessum slóðum fyrir nokkrum árum. Bak við hann á annarri myndinni grillir í hvítmáfa sem eru stærri og “groddalegri”. Hvítmáfar eru þekktir fyrir að helga sér æðarhópa og stela af þeim æti er fuglinn kemur úr kafi en það virðist bjartmáfurinn einmitt vera að gera á annarri myndinni.