Krossnefur
Þann 3. febrúar síðast liðinn birtist frétt um varp krossnefs á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands http://www.ni.is/frettir/nr/879. Tegundin verpir sem sagt á vetrum og var varp staðfest á Suðurlandi en fáar fréttir hafa verið um þá hér eystra. Nú skal bætt úr því en a.m.k. 10 fuglar voru í Mörkinni á Hallormsstað sunnudaginn 29. mars. Ekki sáust ungar en allir sem leið eiga um greniskóga á Austurlandi eru beðnir að svipast um eftir þessum fuglum og láta Náttúrustofu Austurlands vita ef þeir verða þeirra varir.