Merktur tarfur í heimsókn
Árni S. Þorgeirsson myndaði hóp hreindýra ofan við Þrastalund í Norðfirði þann 15. maí og fylgja nokkrar þeirra hér með (með góðfúslegu leyfi ÁSÞ). Tók hann eftir því að einn tafanna var eyrnamerktur með blátt merki í vinstra eyra og svart í því hægra. Hann lét Náttúrustofuna vita og þá kom í ljós að hann var merktur 30. maí 2005 í Sandvík (sjá: Í eldri fréttum) og verður því fjögurra ára eftir rúma viku. Hér með fylgir líka mynd (Rán Þórarinsdóttir) af honum nýmerktum í Sandvík.
Talið var af einni myndinni og voru tarfar 20 (blátt), ein hyrnd kýr sem styttist í burð hjá (rauð) og fimm vetrungar (gulir).
Þann 20. maí myndaði Áslaug Lárusdóttir hópinn og virtust þau þá vera 25, hugsanlega hafði kýrin þá tekið sig út úr hópnum til að bera.