Stari verpir á Egilsstöðum
Sigurbjörg Þórarinsdóttir eigandi verslunarinnar Skógar á Egilsstöðum hafði samband við Náttúrustofuna þann 20. maí og sagði frá því að starar væru líklega með hreiður í þakskeggi verslunarinnar. Það stóð heima og fylgja hér með myndir af parinu sem stóðu í ströngu að mata unga sína og fjarlæga dritpoka frá þeim.
Starinn er sjaldgæfur varpfugl á austurlandi. Árin 1967-1969 verptu 3 pör í Hólmanesi milli Eskifjarðar og Reyðarfirði, 1977 eitt par á Stöðvarfirði, á Vopnafirði fyrir nokkrum árum, í Möðrudal 1996 og 2005 urpu starar tvívegis í Húsey í Hróarstungu og komu upp ungum.
Yfirleitt hafa men boðið starann velkominn hér eystra andstætt því sem var víða á suðvesturhorninu þegar hann var að nema land þar. Ef eftirfarandi slóð er fylgt á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands fást nánari upplýsingar um staravarp og flónna sem lifir í hreiðri hans.
http://www.ni.is/dyralif/smadyr/greinar/nr/261