Sníkjuvespa
Þessi vespa flaug inn um svalahurð í Neskaupstað þann 9.sept síðastliðinn. Um er að ræða sníkjuvespu af ættkvíslinni Ichneumon (karldýr). Kvendýrin eru oft með mjög langa varppípu sem þær bora inn í lirfur t.d fiðrilda og tvívængna en einnig köngulóa og verpa eggjum sínum þar.
Lirfur vespanna nærast síðan á innvolsi fórnarlambanna, sem hljóta hægfara dauðdaga. Sníkjuvespur hemja mjög fjölgun ýmissa meindýra á gróður og eru sumstaðar notaðar markvisst til þess.
Heimildir
http://www.ni.is