Gulygla ( Noctua pronuba)
Þær Elísabet Halla Konráðsdóttir og Bylgja Hálfdánardóttir fundu fiðrildi við Víðimýri 13 á Norðfirði. Fiðrildið reyndist vera gulygla (Noctua pronuba). Gulyglur lifa á íslandi en þær geta einnig borist hingað sem flækingar. Þetta eru fremur stór fiðrildi en lirfurnar dveljast neðanjarðar á daginn en koma fram á nóttunni og nærast á ýmiss konar jurtum. Þar sem þær eru í miklu magni geta þær skemmt uppskeru á ökrum og í görðum. Nýlega fannst dauð gulygla á Hornströndum sjá frétt á vef Náttúrustofu Vestfjarða www.nave.is
Mynd af lirfunum http://en.wikipedia.org/wiki/Cutworm