Hreindýr í Skriðdal
Mikið hefur borið á hreindýrum í Skriðdal í vetur. Halda þau sig mest í nágrenni Haugahóla og sjást þar oft stutt frá veg eins og meðfylgjandi myndir frá miðjum mánuðinum bera með sér. Fullorðnir tarfar eru kollóttir en ungu tarfarnir eru að fella hornin. Hvergi er mjög mikill snjór og því auðvelt að nálgast fæðu bæði þar sem blæs af svo og er auðvelt fyrir þau að krafsa snjóinn burt. Dýrin bera þess merki að tíðarfar hefur verið þeim hagstætt.