Sjóbúr í Safnahúsinu í Neskaupstað
Nú er líf komið í fiskabúrið á Náttúrugripasafninu í Neskaupstað. Þar má meðal annars sjá krossfiska, ígulker, sprettfiska, klettadoppur, beitukónga, kræklinga o.fl
Erlín Emma Jóhannsdóttir starfsmaður Náttúrustofu Austurlands hefur undanfarna daga unnið að því að setja upp landslag í búrið og safna í það dýrum. Pétur Marinó kafari frá Eskifirði aðstoðaði Erlínu við söfnunina og færum við honum bestu þakkir fyrir það.
Ef þið hafið eitthvað sem þið teljið eiga heima í búrinu endilega hafið samband okkur, það vantar m.a litla fiska t.d þorsk og marhnút.
Hafa má samband við Erlínu í síma 4771774 á vinnutíma eða í gsm 8688245.
Þess má að lokum geta að safnið er opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi. Sjá nánar á heimasíðu Fjarðabyggðar.