Axa dúkkar upp eftir langa þögn
Hreinkýr var merkt á Öxi 21. mars 2010 og hlaut nafnið Axa. Stuttu eftir merkinginu hætti hún að senda staðsetningar en dúkkaði upp um daginn og er byrjuð að senda. Á meðfylgjandi myndum sést hvar hún hefur haldið sig. Hún þvældist um Skriðdalinn og síðan Fossárdalinn í apríl en hélt síðan í Hamarsdalsdrög í maí og hefur líklega borið þar.
Spurning er hvort hún tilheyri Axarhjörð (svæði 6) eða Álftafjarðarhjörð (7).
Þegar fréttin var í vinnslu bárust nokkrar viðbótar staðsetningar til 21. maí frá Öxu
og eru þær sýndar á þriðju mynd