Bæklingur um hreindýr
Náttúrustofa Austurlands hefur í samstarfið við Þekkingarnet Austurlands og NEED gefið út bækling um hreindýr.
Megin markmið þessa bæklings er að miðla almennum upplýsingum um hreindýr, auk
þess að efla áhuga og skilning manna á þeim og lifnaðarháttum þeirra. Starfsfólk Náttúrustofu Austurlands hefur tekið upplýsingarnar saman sem þeirra framlag í NEED
- Northern Environmental Education Development project sem er samstarfsverkefni
fjögurra þjóða í Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP) með það markmið að
miðla þekkingu um umhverfi og náttúru. Nánar á www.need.is og www.geoneed.org.
Smellið á hér til að sjá meira.
Heimildir að baki skrifunum er einkum að finna í fyrri skrifum Skarphéðins G. Þórissonar, Ránar Þórarinsdóttur, Ingu Dagmar Karlsdóttur, Kristbjarnar Egilssonar, Helga Valtýssonar og Ólafs Þorvaldssonar. Ekki er vísað beint til þeirra en lesendum sem vilja kynna sér viðfangsefnið nánar og heimildir á bak við það er vísað í þær. Allar ljósmyndirnar eru teknar af Skarphéðni G. Þórissyni nema annað sé tekið fram.
Hafir þú áhuga á að nálgast bæklinginn má gera það hér á heimasíðunni til dæmis með því að smella hér einnig má sjá link á bæklinginn ef valinn er linkurinn "hreindýr" hér til vinstri nú eða hafa samband við Náttúrustofu Austurlands á netfangið na(hjá)na.is og fá sendan útprentaðan bækling.