Erlendir bloggarar, blogga um íslensk hreindýr
Á erlendri bloggsíðu " Reindeer blog" hefur verið vitnað í fréttir af hreindýrum, fréttirnar sem eiga uppruna sinn á heimasíðu Náttúrustofu Austurlands tengjast gjarnan í gegnum fréttir á mbl.is.
Nú nýverið var skrifað um senditækjakýrnar svokölluðu og lesendum bent á heimasíðu Náttúrustofu Austurlands,og hvað eigi að gera til að nálgast upplýsingar um einstaka kýr. Til að komast á áður nefnda bloggsíðu má smella Hér.
Ef þið rekist á fréttir á erlendri grund sem tengdar eru við Náttúrustofu Austurlands megið þið gjarnan deila þeim með okkur í gegnum netfangið okkar na(hjá)na.is