Fólkvangur Neskaupstað - Dýralíf
Fjölskrúðugt fuglalíf er við Haga og úti í Nípu sem er ein iðandi fuglabyggð er utar dregur. Í sjávarhömrunum er varpstaður ýmissa bjargfugla. Fýll og rita eru algeng, einnig silfurmávur, svartbakur og lundi. Æðarfugl er við ströndina og dílaskarfar sjást oft, einkum að vetri. Í hömrum ofan Hagans verpir hrafn og skógarþröstur. Steindepill verpir í Urðum og þar hefur sést músarrindill um varptímann. Uppi á Hálsum verpa ýmsir vaðfuglar og mófuglar og bjargdúfa í klettaholum inn og upp af Hundsvík.
Í pollum á flesjum og töngum má um fjöru og eftir brim sjá ýmis smádýr sem tilheyra lífríki fjörunnar svo sem marflær. Hrúðurkarl og sniglar eru víða á klettum við ströndina og uppi í Haga er svartsnigill og Austfjarðabobbi eða lyngbobbi. Í mógröfum má finna brunnklukkur.