Ranga – þriðja kýrin með staðsetningartæki í Jökuldalsheiði
Í hreindýraflugi 16. mars sást hreinkýr flækt í vírnet við Sænautavatn stutt frá Rangalóni. Seinna um daginn var hún leyst úr prísundinni með hjálp Eiríks Skjaldarsonar. Tækifærið var notað til að hengja staðsetningartæki um háls hennar en hún var skýrð Ranga. Eru kýrnar nú þrjár í Jökuldalsheiðinni með staðsetningartæki um hálsinn, Ranga, Ána og Hlíðarenda.
Í talningunni sást líka kýr með drasl á hornunum við Ragnaborg á Múla.
Ekkert benti til þess að það skaðaði hana en hugsanlega losnar hún ekki
við það fyrr en hún fellir hornin í næsta mánuði ef hún er geld eða
í maí lok ef hún er kelfd.
Enn og aftur hvetur Náttúrustofan alla til þess að ganga þannig um girðingar og drasl að það skaði ekki hreindýr.