Vortalning 2010
Seinni hluta apríl voru gæsir og álftir taldar á Héraði eftir að fjöldi náði hámarki við komuna á svæðið. Alls sáust fimm gæsategundir og einn gæsablendingur auk álfta.
Helstu niðurstöður talninganna voru:
Grágæs = tæpir 13.000 fuglar.
Heiðagæs= tæpir 5.000 fuglar.
Helsingi = tæpir 2.000 fuglar.
Blesgæs = 13 fuglar.
Margæs = 1 fugl.
Gæsablendingur = 1 fugl.
Álft = 80 fuglar.
Aldrei hafa sést eins fáar álftir í vortalningu á Héraði og í þetta sinn. Mögulega hafa harðindi á vetrarstöðvunum í vetur haft þar áhrif á.