Hvar eru gps-kýrnar í júlíbyrjun ?
Í frétt 29. Júní var sagt frá Öxu en ekkert hefur heyrst í henni síðan. Hins vegar berast stöðugar fréttir frá hinum fjórum.
Ána gekk í Kringilsárrana út júní en ákvað 6. júlí að skreppa norður á Háumýrar og verður gaman að sjá hvort hún skilar sér aftur í Ranann eða fer út á Jökuldalsheiði.
Hlíðarenda og Ranga halda tryggð við Kringilsárranann. Reyndar höfðu Ána og Hlíðarenda lengi fylgst að áður en leiðir skildu þann 6. júlí.
Stína heldur sig á Fljótsdalsheiði eins og hún hefur gert síðan hún var merkt í mars við Kristínarkíl en skrapp þó út undir Sandvatn í Fellaheiði um daginn.