Ranga kveður Kringilsárrana
Kýrin Ranga hefur gengið í Kringilsárrana í sumar. Þann 21. ágúst fór hún út yfir Kringilsá á milli kl. 20:00 og 23:00.
Næstu fjóra daga fór hún út með Sauðá, um Vesturdal í Háumýrar og vestur með ánni í
Álftadalskrók og þaðan út Álftadal. Greinilegt er að hún fylgir gróðrinum.
Næstu þrjá daga dvaldi hún síðan í Breiðastykki innan við Þríhyrningsvatn en fór þá aftur inn og vestur á Álftadal.