"þetta er óþverraskapur"
Náttúrustofa Austurlands fékk í síðastliðinni viku ábendingu frá Valgeiri S. Kárasyni starfsmanni Vegagerðarinnar um blóðugar álftir vestan við Fjallsá á suðausturlandi. Haft var samband við Björn Arnarson fuglaáhugamann sem fékk Brynjólf Brynjólfsson til að kanna málið. Í ljós kom að þar höfðu óprúttnir einstaklingar skotið á þrjár álftir, sem eru friðaðar samkvæmt íslenskum lögum og skilið þær eftir særðar. Aðkoman var hræðileg en sem betur fer eru slíkar tilkynningar mjög fátíðar.
Hægt er að lesa frétt um málið á mbl.is með því að smella hér