Fiðrildafréttir
Að undanförnu hefur borið á 2 flækingsfiðrildum í gildru Náttúrustofunnar í Neskaupstað. Asparyglu (Agrochola circellaris) og netluyglu (Xestia c-nigrum) . Netluyglan er talin fágætur flækingur og hefur aðeins fundist á tveim stöðum á Suðausturlandi, Kvískerjum í Öræfum og Höfn í Hornafirði. Asparyglan hefur fundist hér á landi í þó nokkru mæli í fiðrildagildrum á haustin en er þó talin flækingur sjá nánar um Asparyglu á vef Náttúrufræðistofnunnar Íslands með því að smella hér Einnig hefur borið mikið á gulyglu (Noctua pronuba) hún er þó landlæg hér og finnst á láglendi en einnig berst hún til landsins á haustin. Gulygla er með stærstu fiðrildum hér á landi smellið hér til að sjá nánari upplýsingar um Gulyglu