Námskeið í náttúrufræðum fyrir börn
Í júní verður boðið upp á tvö fimm daga námskeið í náttúrufræðum fyrir 8-10 ára börn.
Markmið námskeiðsins er að kynna krökkum fjölbreytt dýra- og plöntulíf í íslenskri náttúru. Farið verður í fjöruferð, í læki og tjarnir, upp í skógrækt og í fleiri vettvangsferðir. Fuglar verða skoðaðir, smádýrum og plöntum safnað og komið með í hús og skoðað undir víðsjá og þau greind.
Námskeið 1: 20-24. júní á Eskifirði. Hluti af dagskrá gönguvikunnar “á fætur í Fjarðabyggð”
Námskeið 2: 27.júní -1.júlí í Neskaupstað
Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9-12 hvern dag og mæta þátttakendur með nesti, stígvél og hlífðarföt. Innritun fer fram hjá Náttúrustofu Austurlands á netfangið na[hjá]na.is , fram til 15. júní á námskeiðið á Eskifirði en 22.júní á námskeiðið í Neskaupstað. Námskeiðsgjald er 3000 kr. Athugið einungis 10 börn komast á hvort námskeið.