Náttúrufræðinámskeiði á Eskifirði lokið
Eins og þrjú undanfarin ár hélt Náttúrustofa Austurlands náttúrufræðinámskeið á Eskifirði í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri. Námskeiðið er hluti af dagskrá gönguvikunnar „ á fætur í Fjarðabyggð“ Fimm krakkar tóku þátt og luku því með sóma.
Meðal þess sem var gert á námskeiðinu var að skoða og greina blóm, lífríki fjörunnar kannað, Helgustaðanáman skoðuð, lífríki Hólatjarna kannað og margt fleira. Við viljum þakka krökkunum fyrir þátttökuna
Því miður var ekki næg þátttaka til að halda námskeiðið í Neskaupstað í ár.
Fleyri myndir frá námskeiðinu eru hjá Ferðaþjónustunni Mjóeyri á fésbók.