Engispretta í heimsókn - blessuð sé minning hennar
Leifur Þorkelsson starfsmaður HAUST færði Náttúrustofunni engisprettu sem fannst í káli í grunnskólanum á Egilsstöðum þann 16. mars. Hún komst síðan í fréttirnar sem varð henni að fjörtjóni. Hér fylgir með bréf Leifs til Þorgerðar Sigurðardóttur birt með góðfúslegu leyfi Leifs:
Sæl vertu Þorgerður
Þessi vinkona ykkar sem heimsótti ykkur í morgun er engispretta eins og þú hefur trúlega frétt, Skarphéðinn hjá Náttúrustofunni telur líklegast að hér sé um að ræða engisprettu sem ættuð er frá Egyptalandi. Hún kemur frá grænmetisframleiðanda sem er staðsettur á Murcia svæðinu á Spáni. Grænmetið er flutt með flutningabíl frá Spáni til Hollands og tekur sú ferð 3-4 daga. Í Hollandi fara síðan kassarnir í gám og með skipi frá Rotterdam til íslands og tekur sú ferð viku.
Þessi kom væntanlega með skipi frá Hollandi á mánudaginn (14. mars) og kom austur í nótt, hún hefur því væntanlega lagt í hann frá Spáni fyrir síðustu helgi (3.-4. mars)
Þessi kona í Bretlandi lenti í svipuðu fyrir jólin. Ástæða þess að framandi tegundir á borð við þessa finnast í grænmeti er líklega sú að nú nota framleiðendur lítið sem ekkert af skordýraeitri miðað við það sem áður var.