Frásögn af fótstuttu hreindýri
Í maílok 2010 rákust starfsmenn Náttúrustofunnar á hreindýrahjörð í Hrafnkelsdal. Eitt dýrið skar sig úr hópnum vegna þess hversu lágfætt það var. Þetta rifjaðist upp er hreindýrahópur var skoðaður á Öxi fyrir stuttu en þar í var óvenju fótstuttur einstaklingur. Telur Skarphéðinn G. Þórisson miklar líkur á því að um sama dýrið hafi verið að ræða þar sem hann hefur aldrei á 34 ára hreindýraglápi sínu séð svona dýr nema þá á Svalbarða.
Dýrið minnir á Svalbarðshrein sem eru áberandi lágfættir og búkmiklir eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.