Hreindýr á Fagradal
Hreindýr á Fagradal 15. mars 2012 Sveinn Sveinsson hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði hringdi í Náttúrustofuna að morgni 15. mars og sagði frá hreindýrahópi á miðjum Fagradal. Þar reyndust vera 68 kýr, 36 kálfar, 8 ungir tarfar og 7 eldri eða samtals 119 dýr. Ekki er ólíklegt að þau gangi á dalnum næstu vikurnar og þurfa ökumenn að hafa það í huga.