Fjölmenni á atvinnulífssýningu
Atvinnulífssýningin „Okkar samfélag“ var haldin í Egilsstaðaskóla dagana 18. og 19. ágúst s.l. Þar gafst gestum tækifæri á að kynna sér fjölbreytta starfsemi 80 fyrirtækja og stofnana á Fljótsdalshéraði. Áætlað er að um 3.000 gestir hafi mætt á sýninguna sem heppnaðist vel í alla staði. Á meðfylgjandi myndum má sjá kynningarbás Náttúrustofunnar á atvinnulífssýningunni og með því að smella hér má sjá fleiri myndir
.